{"product_id":"rc-dog-golden-retriever-adult-12kg","title":"RC Dog Golden Retriever Adult 12kg","description":"\u003ch3\u003eÞurrfóður fyrir Golden Retriever eldri en 12 mánaða\u003c\/h3\u003e\n\u003ch4\u003eHeilbrigt hjarta\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eVandamál með hjarta hefur í gegnum tíðina verið þekktur veikleiki í Golden Retriever. Þetta hafa verið vandamál er snúa að ofstækkun hjartans sem verður þar af leiðandi með veikburða ytri himnu sem getur rofnað (e. Filated Cardiomyopathy; DCM) en sömuleiðis hafa greinst vandamál er snúa að þrengingum í vinstra slegli hjartans (e. Aortic Stenosis). Í fóðrinu eru efni sem stuðla að heilbrigðri hjartastarfssemi. Þessi efni eru fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur, amínósýran tárín og L-karnitín en tvö síðasttöldu efnin leika hlutverk í heilbrigðum hjartavöðva á meðan ávinningurinn af ómega-3 fitusýrunum snýr meira að æðakerfinu.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eHeilbrigð þyngd\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eAðlagað hitaeiningamagn stuðlar að viðhaldi heilbrigðrar þyngdar en Golden Retriever á það til að þurfa að glíma við of mikla þyngd sem setur aukið álag á liði hjá þessari stóru og fallegu tegund.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eHeilbrigðir liðir\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eMjaðmalos og liðverkir eru þekkt einkenni Golden Retriever, sérstaklega þegar þeir eldast. Fóðrið inniheldur því bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eHeilbrigð melting\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFóðrið stuðlar að heilbrigðri meltingu og jafnvægi í þarmaflórunni. Aðlagað magn af auðmeltanlegum próteinum (LIP), trefjum og góðgerlafæðu (FOS) sem stuðla að bættri meltingu.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eViðheldur og styrkir húð og feld\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eStyrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA) en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans, og með A-vítamíni og hjólkrónuolíu en öll leika þessi efni lykilhlutverk í heilbrigðri húð og feld.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eFóðurkúlurnar\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eKúlurnar eru sérstaklega hannaðar með Golden Retriever tegundina í huga. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Goldeninn til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eTannheilsa\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eLögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna \"burstun\" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eNæringargildi\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003ePrótein: 25% - Trefjar: 1.4% - Fita: 14%.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Dýrmæti - Dýralæknir mætir heim til þín","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44644187013208,"sku":null,"price":21164.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0657\/3100\/2456\/files\/StockImage_7.jpg?v=1787419688","url":"https:\/\/www.dyrmaeti.is\/products\/rc-dog-golden-retriever-adult-12kg","provider":"Dýrmæti - Dýralæknir mætir heim til þín","version":"1.0","type":"link"}