{"product_id":"rc-urinary-care-12x85g-blautfodur","title":"RC Urinary Care 12x85g blautfóður","description":"\u003ch3\u003eBlautfóður sem sérstaklega er ætlað köttum sem eiga það á hættu að mynda kristalla eða steina í þvagi\u003c\/h3\u003e\n\u003ch4\u003eÚtþynnt þvag\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFóðrið er samsett þannig, er varðar steinefnainnihald, að það hvetur köttinn til að drekka. Aukin vatnsdrykkja gerir það að verkum að þvagið verður betur þynnt út og því eru líkurnar orðnar minni á því að mynda kristalla eða steina í þvagi en vandamál í þvagleiðarakerfi er vel þekkt hjá köttum, sérstaklega eftir því sem þeir eldast.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eSömuleiðis hefur magn ákveðinna steinefna, sem í of miklu magni geta haft neikvæð áhrif á heilsu þvagleiðarakerfisins, til dæmis fosfórs (P), verið minnkað og aðlagað þannig að það minnkar líkurnar á neikvæðum áhrifum.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eVatnsdrykkja skiptir miklu máli\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eMikilvægt er að hafa hreint vatn alltaf tiltækt fyrir köttinn þinn og er það óháð stærð eða tegund. Kettir eru alþekktir fyrir hvað þeir eru latir við að drekka vatn og því er mikilvægt að hvetja þá sem mest til að drekka vatn.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eÞegar hlýtt er í veðri\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eMunum að hlýtt er lægra hitastig hjá köttum en hjá flestu fólki, og þá er auk þess enn mikilvægara að passa vel upp á vatnsdrykkjuna þeirra.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eBlautfóður hentar sérstaklega vel\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEf vafi leikir á hvort kötturinn þinn sé að drekka nóg af vatni getur verið góður kostur að vera með hluta fóðrunar hans í gegnum blautfóður. Blautfóðrið inniheldur mikið af vatni og því stuðlar fóðrunin að betri og heilbrigðari vatnsbúskap sem minnkar líkurnar á vandamálum í þvagleiðarakerfi.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eBragðgott og höfðar vel til matvöndustu katta.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cspan\u003eFóðrið er fyrst og fremst notað til að koma í veg fyrir myndun kristalla og steina í þvagi. Ef vafi leikur á heilsu kattarins skal ávallt leita til dýralæknis.\u003c\/span\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch4\u003eNæringargildi\u003c\/h4\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003ePrótein: 9.2% - Fita: 3% - Trefjar: 0.9%\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Dýrmæti - Dýralæknir mætir heim til þín","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44244660846680,"sku":null,"price":4607.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0657\/3100\/2456\/files\/uri.png?v=1781562301","url":"https:\/\/www.dyrmaeti.is\/products\/rc-urinary-care-12x85g-blautfodur","provider":"Dýrmæti - Dýralæknir mætir heim til þín","version":"1.0","type":"link"}