Um okkur

Við erum Þórunn og Valdís - dýralæknir og aðstoðarkona sem hafa mikinn áhuga á að veita persónulega, aðgengilega og rólega þjónustu við gæludýr í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu með það að leiðarljósi að dýrin séu eins streitulaus og mögulegt er við meðhöndlun.

Þórunn hefur starfað sem dýralæknir síðan hún útskrifaðist árið 2020 frá dýralæknaháskólanum í Kosice, Slóvakíu. Hún starfaði fyrstu árin sem almennur læknir á smádýraspítala og nú einnig við bráðaþjónustu. Hún stundar nú framhaldsnám í lyflæknisfræði til að auka þekkingu í greiningu og meðferð helstu sjúkdóma hunda og katta. Hún hefur mikinn áhuga á lyflæknisfræði og bráðalækningum.

Valdís hefur starfað sem aðstoðarkona dýralæknis í 6 ár og séð um ýmislegt á þeim tíma, meðal annars að fylgjast með lífsmörkum hunda og katta í aðgerðarsvæfingu, sinna innlagnarsjúklingum, almennar ráðleggingar í síma og allt annað tilfallandi sem læknir gæti þurft aðstoð með. Hún mun sjá mest um rekstur fyrirtækisins en einnig vera innan handar í öllum vitjunum þar sem gæti þurft fleiri hendur, til dæmis þegar taka á blóðprufur eða önnur sýni, minniháttar aðgerðir og slíkt.

Endilega hafið samband!

Hægt er að ná í okkur í síma, netfang, eða með því að fylla út formið hér að neðan.

Athugið að ekki er um neyðarþjónustu að ræða og að okkur er ekki alltaf unnt að svara símtölum um leið og þau berast. Við hringjum þá til baka við fyrsta tækifæri.

Netfang: info@comfortvet.is

Sími: +354 777 2949

Ef um neyðartilvik er að ræða er bent á að hafa samband við
sólahringsopna bráðamóttöku dýra - Animalíu - í síma 555-0112

Fyrirspurnir