Athugið að pantanir verða tilbúnar til sendingar eftir 2-4 virka daga.
Dýrmæti - Dýralæknir mætir heim til þín
RC Xsmall Adult 8+ 1,5kg
RC Xsmall Adult 8+ 1,5kg
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Þurrfóður yrir mjög litla hunda 8 ára og eldri
Heilbrigð öldrun
Í fóðrinu er að finna álitlegt magn andoxunarefna frá fjölfenólum úr grænu tei en fjólfelónar geta leikið lykil hlutverk í því að öldrunareinkenni komi síðar fram. Andounarefni hlutleysa sindurefni (skemmdarefni) og minnka þar með skaðleg áhrif þeirra á líkamann eftir því sem aldurinn færist yfir.
Stuðningur við meltingu
Trefjaríkt og auðmeltanleg prótein (LIP) sem stuðla að betri hægðum en smáhundar eru í áhættuhóp á að fá hægðatregðu. Inniheldur góðgerlafæðuna FOS sem styrkir og eflir örveruflóru meltingarvegs.
Heilbrigð húð og feldur
Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja ytri vörn húðarinnar og þannig stuðlar fóðrið að glansandi feldi og heilbrigðri húð.
Heilbrigð þyngd
Fóðrið inniheldur L-karnitín sem hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri fitubrennslu og viðhalda þannig heilbrigðri þyngd.
Tannheilsa
Lögun fóðurkúlnanna er með þeim hætti að þær hvetja hundinn til þess að tyggja en það minnkar hættuna á tannsteinsmyndun sem er töluvert algengt vandamál hjá mjög smáum og smáum hundum.
Þvagrásarkerfi
Styður við heilbrigt þvagrásarkerfi með því að hvetja til vatnsinntöku og með aðlöguðu magni steinefna sem auka þorsta og þar með drykkju hundsins.
Næringargildi:
Prótein: 24% - Trefjar: 1.7% - Fita: 18%.
Stærð:
Fullorðnir mjög litlir hundar sem vega undir 4 kg og hafa náð 8 ára aldri.
Share
