Skip to product information
1 of 2

Athugið að pantanir verða tilbúnar til sendingar eftir 2-4 virka daga.

Dýrmæti - Dýralæknir mætir heim til þín

Protexin PlaqEase

Protexin PlaqEase

Regular price 4,483 ISK
Regular price Sale price 4,483 ISK
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
Stærð

Protexin Veterinary PlaqEase tannaduftið sameinar góðgerla, þara og C-vítamín til að skapa einfaldan og áhrifaríkan stuðning við tannheilsu sem hentar köttum og hundum, hjálpar til við að draga úr myndun tannsteins, dregur úr vondri lykt úr munnholi og styður við heilbrigða örveruflóru í munni og þörmum. Munnflóran í hundum og köttum samanstendur af fjölbreyttu samfélagi örvera, aðallega baktería. Þessar örverur gegna lykilhlutverki í að viðhalda tannheilsu, hafa áhrif á ferli eins og meltingu og ónæmisstarfsemi, auk þess að hafa neikvæð áhrif eins og að valda tannsteinsmyndun. Jafnvægi í örveruflórunni hjálpar til við að takmarka vöxt ákveðinna tegunda baktería sem geta stuðlað að slæmri tannheilsu.

Klínískt prófuð innihaldsefni og vísindalega studd formúla
Duftið inniheldur Lactiplantibacillus plantarum CECT 9161 (PRIOME® OC) sem styður við örveruflóru í munni, og bæði CitriStim og Fibersol-2® sem styður við þarmaflóruna. Petbiotix® bakteríurnar okkar hafa verið þróaðar af fagfólki til að styðja við heilbrigða örveruflóru, sem er nauðsynleg fyrir eðlilega starfsemi meltingarvegarins og restarinnar af líkamanum.

Auðvelt í notkun
Bætið einfaldlega Protexin Veterinary PlaqEase tannadufti út í fóður kattarins eða hundsins á hverjum degi með því að nota skeiðina sem fylgir. Þú getur stráð því yfir blautan eða þurran mat. Skammtastærðir má finna á umbúðum.

Sjórnar myndun tannsteins og dregur úr vondri lykt
Duftið inniheldur þara, sem hjálpar til við að minnka magn efnasambanda sem valda ólykt, hjálpar til við að draga úr tannsteini og stjórna uppsöfnun tannsteins – og klínískt prófaða Lactiplantibacillus plantarum CECT 9161 (PRIOME® OC), sem hjálpar til við að draga úr tannsteini.

Heilbrigt tannhold fyrir heilbrigt ónæmiskerfi
Þari styður við heilbrigt tannhold og stuðlar að náttúrulegu ónæmissvari kattarins eða hundsins, en viðbætt C-vítamín styður við kollagenframleiðslu, sem er mikilvægt fyrir heilbrigði tannholds.

View full details